Dagskrá Vetrarstarfið Embætti Félagaskrá Fundargerðir
 

 
Fundargerðir:

  • Fundargerð fyrsta fundar veturinn 2004-2005

    Miðvikudaginn 8.september 2004

     Varaformaður Lárus Sveinsson setti fund í fjarveru formanns Guðmundar Hafsteinssonar og bauð félaga velkomna í nýtt húsnæði í Lionsheimilinu.  Vararitari Valdimar Jónsson las tvær síðustu fundargerðir frá síðasta vori og voru þær samþykktar samhljóða.  Gjaldkeri William Gunnarsson fráfarandi stjórnar bauð nýja stjórn velkomna að stjórnartaumunum og voru viðhöfð merkjaskipti. 

     Las formaður Lárus Sveinsson upp hverjir verða nefndarformenn og einnig hverjir voru svo heppnir að lenda í nefndum. Viðhengi meðfylgjandi.  Ritari Valdimar Jónsson framkvæmdi nafnakall þessu næst og var sæmileg mæting 20 mættir. 

     Fram var borinn matur og var gert matarhlé.  Ritari Valdimar Jónsson greindi frá helstu afrekum á síðasta Lionsþingi í vor á Sauðárkróki. Einnig greindi ritari Valdimar Jónsson frá því að félagatal hafi tafist í prentun en mun vera tilbúið á næsta fundi.  Gjaldkeri Heiðar Sigurðsson greinir frá að félagsgjald verður það sama og síðasta ár 15000.- 

     Boðið var þá upp á kaffi og var tekið hlé.  Dagskrá funda haustsins var kynnt og var gert ráð fyrir góðri þátttöku í haustferð sem er framundan þann 18 september næstkomandi.  Skemmti og útivistarnefnd gerði grein fyrir hvernig ferðinni verði háttað og bað menn um að skrá sig til þátttöku. 

     Var þá tekin fyrir önnur mál og voru Guðmundur Þórðarson og Kristján Kristjánsson sammála um að húsgögnin í heimilinu væru til skammar og óskuðu eftir því að stjórn kæmi á framfæri við yfirstjórn kvörtunum um aðkomu klúbbsins að “nýju húsi”. Nýr siðameistari tók sig til og sektaði hóflega. 

     Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið 20.05

     Ritari

    Valdimar Jónsson

    _____________________________________________________________________________________

    Fundargerð 4 fundar 27 október 2004

     Fundur settur 18.45

    Nafnakall , 28 með löglega mætingu

    Fundargerðir annars og þriðja fundar lesnar upp og samþykktar

    Stefán Skarphéðinsson Umdæmisstjóri boðinn velkominn á fundinn

    William greinir frá seinkun á uppgjöri og afhendir stjórn jakka Páls Hreggviðssonar til eignar.  Var þá gert matarhlé.  Eftir mat hélt umdæmisstjóri tölu þar sem hann kom inná helstu atriði sem hann mun leggja áherslu áí vetur í sínu starfi sem umdæmisstjóri.  Að lokinni ræðu umdæmisstjóra var nokkuð um fyrirspurnir sem Stefán svaraði að bragði.  Fram komu tvær tilllögur um staðsetningu jólahlaðborðs frá formanni Skemmti og útivistarnefndar.  Þórarinn óskaði eftir að útivistarnefnd kæmi göngutúrunum á aftur.  Sigurður Danielsson sagði frá því að Fjárhagsnefnd væri með ymis mál í vinnslu.  Ásmundur segir frá því að samband hefði verið haft við foreldrafélag einhverfra og fulltrúi þeirra muni koma til okkar á fund til að skýra frá þeirra starfi til að við getum gert okkur grein fyrir hvernig við getum best hjálpað.  Guðmundur Þórðarson tók til máls og taldi það í verkahring skemmtinefndar að ákveða hvar jólahlaðborð færi fram.  Nokkrar umræður fóru fram undir liðnum önnur mál.  Húsbréfanefnd skilað þónokkrum peningum til gjaldkera fyrir sölu á húsbréfum.  Að lokum þakkaði Stefán fyrir sig og siðameistari rukkaði nokkuð ríflega.  Fundi slitið 21.05

    ________________________________________________________________________

    Fundargerð 5 fundar miðvikudaginn 10 nóvember 2004

     Fundur settur kl 18.45 að staðartíma og bað formaður gesti velkomna.  Viðhafði ritari annarskoar nafnakall þar sem hver og einn stóð upp og kynnti sig.  Las þá ritari upp fundargerð 4 fundar og var hún samþykkt með einni nafnabreytingu.  Var þá tekið matarhlé.  Á meðan á mat stóð voru þeim sem ekki höfðu fengið afhent sín 100% merki afhent þau.  Eftir að mat lauk bauð formaður Eirík Þorláksson frá Umsjónarfélagi einhverfra velkomin og sagði Eiríkur okkur upp og ofan af starfsemi þeirra og hvernig við getum best liðsinnt þeim.  Verður formaður líknarnefndar í sambandi við Eirík þegar liggur fyrir hvernig við getum liðsinnt þeim best.  Formaður félaganefndar tók þá til máls og sagði frá því hvernig nefndin ætlar að sinna starfi sínu þennan veturinn og þakkaði Guðmundi Þórðarsyni sérstaklega fyrir störf hans í þágu nefndarinnar og klúbbsins.  Tók þá nefndur Guðmundur til máls og mælti með Jóhanni Guðnasyni sem klúbbmeðlim. Ásamt því að bjóða Hörð Kristjánsson velkomin sem gest á fundinn.  Önnur mál voru þá tekin fyrir og var rætt meðal annars um hvort við eigum að vera áfram í Lionsheimilinu eða ekki frekar voru menn á því að fara, einnig bað Jónas nýju mennina afsökunar á því að félagarnir hefðu ekki verið nógu duglegir að kynnast þeim.  Einnig var minnt á jólahlaðborðið sem fram fer laugardaginn 4 des næstkomandi að Hótel Heklu.  Guðmundur Þórðarson minnti menn á vesturferð sem farin verður i kringum 20 nóvember til að sækja kjöt sem menn pöntuðu nú í haust.  Að lokum var Kjartan Kjartansson heiðraður í tilefni af 60 ára afmæli hans 1.nóvember síðastliðinn.

     Að lokum rukkaðu siðameistari drjúgt.

     Fundi slitið kl. 20.20

     Fh stjórnar

    Valdimar Jónsson.  Ritari  

    ________________________________________________________________________

    Lionsklúbburinn Týr

    Innifundur miðvikudaginn 8.des

    Lionsheimilið Sóltúni

     

    Fundur var settur að venju kl. 18.45 og bauð formaður alla félaga velkomna.  Framkvæmdi ritari nafnakall og var heldur slök mæting eða 19 félagar en aðrir 5 fengu mætingu vegna jólahlaðborðs.  Þessu næst var fundargerð 6 fundar lesin upp og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum eftir svolitlar umræður.  Þá skýrði formaður frá árlegum heilsufundi sem haldinn verður mánudaginn 27. desember í Saga Heilsa og Spa í Kópavogi hjá félögum okkar Guðmundi og Kristmann.  Tók þá William til máls og bað menn að hafa allar frásagnir í styttri gerðinni þar sem það gæti misskilist ef út í langar frásagnir yrði farið.  Stóð þá formaður Skemmti og útivistanefndar upp og sagði frá jólahlaðborði sem farið var á, á Laugardaginn 4des síðastliðinn.  Komu þar saman 25 manns bæði félagar og makar og var gerður góður rómur að bæði mat og drykk og ekki síst gistiaðstöðunni sem var til sóma fyrir Hótel Heklu þar sem jólahlaðborðið var haldið. Eftir þennan fyrirlestur var gert matarhlé og var á borð borið þessi fína steik sem menn gerðu góð skil.  Eftir að matarhlé lauk tók formaður Yngingarnefndar sig til og sagði frá starfi þeirrar nefndar og í stuttu máli er ekkert að frétta af þeirri nefnd þar sem ekki hefur verið haldinn fundur þar þetta haustið en formaðurinn lofaði bót og betrun.  Bað formaður klúbbsins menn um að taka frá miðvikudaginn 26.01.04 fyrir þorrafund með sonum tengdasonum og vinum og hvatti félagana til að koma með sem flesta með sér.  Var þá tekið kaffihlé og eftir það var tekin fyrir umræða um Hjónavina kvöld sem haldið verður föstudaginn 11. febrúar næstkomandi og voru menn sammála um að nú þyrfti að gera skurk í því að finna efni við hæfi og var formaður skemmti og útivistanefndar ásamt formönnum fjárhags og líknarnefndar hvattir til að nýta sér þá reynslu sem byggi í klúbbnum með því að nota þau sambönd sem fyrir eru.  Þó nokkrar umræður sköpuðust um þetta efni og voru menn ekki á eitt sáttir hvort það tæki því að vera að leggja svo mikla vinnu í þetta mál miðað við hversu lítið menn sælu af fjármunum skila sér.

    Siðameistari sektaði hóflega en þó þannig að menn gátu borgað sektir sínar.

    Fundi slitið kl. 20.25

     

    Fh Stjórnar

    Valdimar Jónsson

    Ritari