Suðurpóllinn 1997   DAGBÓK LEIÐANGURSINS

Hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík er tekið á móti skilaboðum frá Argos-sendinum sem leiðangursmenn hafa meðferðis. Þegar kveikt er á tækinu sendir það frá sér upplýsingar um staðsetningu og hitastig. Einnig er unnt að senda ákveðna kóda, frá 0 til 15, og fyrirfram er ákveðið hvað hver kódi þýðir. Þannig er hægt að gefa til kynna t.d. hvort veður er gott eða slæmt. Upplýsingar eru færðar inn í dagbókina hér að neðan jafnóðum og þær berast frá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík.

Hér fyrir neðan er tafla er sýnir staðsetningu leiðangursmanna frá degi til dags og hversu langt þeir hafa gengið.

Dagur Dags. Staðsetning Km/dag Km alls Skilaboð
51. 1 jan 90°00,000 S
90°00,000 W
18 1086 Pólnum náð!
50. 31 des 89°50,220 S
81°17,040 W
22 1068 Gleðilegt nýtt ár.
Hiti -27°C.
49. 30 des 89°38,760 S
82°26,640 W
22 1046 Hiti -21°C.
48. 29 des 89°26,640 S
82°23,940 W
25 1024 Hiti -28°C.
47. 28 des 89°13,590 S
78°54,436 W
24 999 Hiti -25°C.
46. 27 des 24 975 Erum á ferð.
Hiti -24°C.
45. 26 des 88°48,840 S
82°42,000 W
28 951 Erum á ferð.
Allt í góðu lagi.
44. 25 des 88°33,580 S
82°26,580 W
19 923 Hiti -21°C.
43. 24 des 88°23,280 S
82°51,420 W
24 913 Gleðileg jól.
Hiti -22°C.
42. 23 des 88°10,820 S
83°48,780 W
23 889 Gleðileg jól.
Hiti -27°C.
41. 22 des 87°58,800 S
85°06,420 W
26 866 Miklir skaflar.
Hiti -27°C.
40. 21 des 87°44,480 S
85°15,420 W
26 840 Hiti -22°C.
39. 20 des 87°30,480 S
84°55,620 W
23 814 Hiti -21°C.
38. 19 des 87°18,540 S
85°10,320 W
24 791 Hiti -22°C.
37. 18 des 87°06,960 S
84°49,320 W
24 767 Hiti -22°C.
36. 17 des 86°54,840 S
84°37,620 W
22 743 Hiti -27°C.
35. 16 des 86°42,420 S
84°55,500 W
24 721 Hiti -25°C.
34. 15 des 86°29,940 S
84°04,320 W
24 697 Hiti -23°C.
33. 14 des 86°16,860 S
84°03,540 W
22 673 Hiti -22°C.
32. 13 des 86°04,800 S
83°57,420 W
24 651 Hiti -20°C.
31. 12 des 85°51,470 S
81°28,440 W
24 627 Hiti -20°C.
30. 11 des 85°38,160 S
81°43,920 W
26 603 Hiti -20°C.
29. 10 des 85°25,380 S
81°33,540 W
27 577 Hiti -21°C.
28. 9 des 85°10,620 S
81°23,220 W
22 550 Hiti -23°C.
27. 8 des 84°58,020 S
81°32,400 W
7 528 Slæmt veður.
Hiti -25°C.
26. 7 des 84°54,840 S
81°38,400 W
26 521 Hiti -24°C.
25. 6 des 84°40,020 S
81°26,780 W
28 495 Hiti -23°C.
24. 5 des 84°25,380 S
81°07,560 W
0 467 Hvíld.
Hiti -22°C.
23. 4 des 84°25,380 S
81°07,560 W
26 467 Slæmt veður.
Hiti -22°C.
22. 3 des 84°11,040 S
81°08,460 W
31 441 Eru í tjaldstað.
Hiti -21°C.
21. 2 des 83°54,180 S
80°42,060 W
22 410 Hiti -35°C.
20. 1 des 83°43,440 S
80°40,680 W
21 388 Hiti -20°C.
19. 30 nóv 83°32,280 S
80°30,300 W
24 367 Eru í tjaldstað.
Hiti -26°C.
18. 29 nóv 83°19,260 S
80°19,080 W
21 343 Eru í tjaldstað.
Hiti -20°C.
17. 28 nóv 83°08,760 S
80°16,140 W
22 322 Eru í tjaldstað.
Hiti -22°C.
16. 27 nóv 82°56,640 S
80°05,820 W
23 300 Gott veður.
Hiti -23°C.
15. 26 nóv 82°43,740 S
79°57,900 W
23 277 Eru í tjaldstað.
Hiti -23°C.
14. 25 nóv 82°31,140 S
79°49,920 W
22 254 Eru í tjaldstað.
Hiti -22°C.
13. 24 nóv 82°19,800 S
79°49,080 W
22 232 Eru í tjaldstað.
12. 23 nóv 82°07,080 S
79°54,200 W
24 210 Eru í tjaldstað.
11. 22 nóv 81°54,780 S
79°56,160 W
20 186 Eru í tjaldstað.
10. 21 nóv 81°43,560 S
79°58,740 W
23 166 Eru í tjaldstað.
9. 20 nóv 81°31,860 S
80°01,190 W
19 143 Gengu í 12 klst.
Hiti -23°C.
8. 19 nóv 81°21,960 S
80°04,740 W
22 124 Gengu í 11 klst.
Hiti -22°C.
7. 18 nóv 81°09,240 S
80°18,540 W
22 102 Gengu í 11 klst.
Hiti -27°C.
6. 17 nóv 80°57,420 S
80°28,860 W
17 80 Gengu í 9 klst.
5. 16 nóv 80°49,140 S
80°37,440 W
17 63 Gengu í 10 klst.
Veðrið er gott.
4. 15 nóv 80°40,140 S
80°48,420 W
13 46 Gengu í 10 klst.
3. 14 nóv 80°33,360 S
80°50,820 W
12 33 Gengu í 8 klst.
Veðrið er gott.
2. 13 nóv 80'26,460 S
80'54,480 W
14 21 Gengu í 8 klst.
Eru í tjaldstað.
1. 12 nóv 7 7

13. janúar
Ólafur, Haraldur og Ingþór munu loksins koma til Íslands kl. 06:00 á miðvikudag, 14. janúar, með flugi frá Orlando.  Velkomnir heim, strákar!

12. janúar
Þann 11. janúar var loks hægt að fljúga frá Patriot Hills.  Suðurpólsfararnir lentu í Punta Arenas í Chile aðfararnótt 12. janúar og halda þaðan heim á leið með viðkomu í Santiago, Chile og Orlando, Flórída.  Þeir eru væntanlegir til Íslands að morgni miðvikudagsins 14. janúar eftir tveggja og hálfs mánaðar fjarveru.

10. janúar 1998
Veður skánar ekkert í Patriot Hills og því hafa leiðangursmenn ekki komist ennþá til Chile.

7. janúar 1998
Leiðangursmenn eru enn veðurtepptir í Patriot Hills.  Þeir áttu að fljúga til Chile þann 5. janúar.  Vind hefur lægt en það snjóar og viðrar ekki til flugs.   Skyggni er mjög lélegt.

2. janúar 1998
SKILABOÐ FRÁ ÍSLENSKA SUÐURPÓLSLEIÐANGRINUM

Við náðum takmarki okkar, Suðurpólnum, á nýársdag (1. janúar 1998) um kl. 21:00 að íslenskum tíma.  Þetta var stórkostleg stund fyrir okkur alla.  Við drógum upp íslenska fánann sem blakti fallega í hægum vindi.

Ferðin gekk mjög vel.  Hún hefur verið umfram allt mjög ánægjuleg.  Engin alvarleg vandamál komu upp sem við gátum ekki ráðið við.

Suðurpóllinn er syðsti staður jarðarinnar og þar blása allir vindar úr norðri.   Við getum á nokkrum sekúndum farið yfir öll tímabelti jarðarinnar.  Hér er bandarísk rannsóknarstöð (Amundsen-
Scott stöðin) og hafa móttökur verið mjög góðar.

Við höfum gengið samfellt í 51 dag.  Einn dag héldum við þó kyrru fyrir vegna veðurs.  Þá var 25 stiga frost og 10 til 12 vindstig.  Leiðin frá Patriot Hills til Suðurpólsins er 1100 km löng og var meðalhraðinn því 22 km á dag.   Frostið var oftast á bilinu 20 til 30 stig á Celsius.  Vindurinn blés alltaf á móti okkur, að jafnaði 4 til 8 vindstig.  Það var aldrei meðvindur.   Kælingin var þvi oft mjög mikil.  Oft var erfitt að verjast kali í andliti og á höndum.  Allir fengum við þó minni háttar kal. 

Mesti farartálminn a leiðinni voru miklir rifskaflar.  Rifskaflar (sastrugi) voru fyrstu 450 km og síðan 200 km á seinni hluta leiðarinnar.  Oft var erfitt að draga yfir 100 kg þunga sleðana yfir þessa skafla.

Snemma i ferðinni fórum við yfir sprungusvæði.  Seinna í ferðinni tókst okkur að sveigja fram hjá þremur öðrum sprungusvæðum án vandræða.

Á seinni hluta leiðarinnar var snjórinn oft mjög stífur þannig að sleðarnir runnu illa og virtust hafa þyngst um helming.  Líkja má þessum aðstæðum við að draga sleða á sandi eða í hveiti.

Vegna lítils loftþrýstings á Sudurpólnum fundum við mikið fyrir súrefnisskorti þegar við nálguðumst 3000 metra hæð.  Öndun var mjög hröð við áreynslu og hægði á öllum hreyfingum.

Allur búnaður reyndist mjög vel og engar alvarlegar bilanir komu upp.  Við gátum lagað allt sem bilaði.  Alvarlegasta vandamálið sem kom upp var bensínleki.   Bensín komst í hluta af matnum sem eyðilagðist við það.  Þrátt fyrir þetta höfðum vid nægan mat.

Nú höfum við fengið skilaboð um það að flugvél sé væntanleg að sækja okkur um kl. 03:00 (eftir midnætti) 3. jan. 1998 að íslenskum tíma.   Við fljúgum til Patriot Hills þar sem gangan hófst.  Þar verður hægt ná í okkur í síma eins og við upphaf ferðar.  Frá Patriot Hills fljúgum við til Punta Arenas í Chile þann 5. jan ef veður leyfir og síðan heimleiðis eins fljótt og hægt er um Santiago, Miami og Orlando.

Við viljum koma okkar allra bestu kveðjum heim til fjölskyldna okkar, vina, þeirra sem studdu okkur og allra íslendinga.  Við hlökkum til að koma heim.

ÍSLENSKI SUÐURPÓLSLEIÐANGURINN
Ólafur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Ólafsson
Ingþór Bjarnason

1. janúar 1998
Klukkan 21:05 að íslenskum tíma kom leiðangurinn á suðurpólinn og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með frækilegt afrek.  Þeir halda nú til hjá Amundsen-Scott rannsóknarstöðinni, sem er við suðurpólinn, þangað til þeir hefja ferðina heim á leið.

1. janúar 1998
Á nýársmorgun áttu leiðangursmenn eftir 18 km að suðurpólnum og gert er ráð fyrir að göngunni ljúki um kl. 22:00 í kvöld að íslenskum tíma.

27. desember
Skilaboð bárust frá leiðangursmönnum í gegnum Patriot Hills.  Leiðangurinn er nú (í lok dags 26. des) 132 km frá Suðurpólnum.  Frostið er -26°C.   Aðstæður hafa verið mjög erfiðar og sleðarnir virðast helmingi þyngri en þeir eru.  Skíðafærið er mjög slæmt þessa síðustu 150 km áður en pólnum er náð og skíðin límast við snjóinn.  Það má líkja því við að ganga á skíðum í sandi með þunga sleðana í eftirdragi.  Strákarnir eru þó allir við góða heilsu og í góðu skapi og þeir vonast til að ná pólnum á nýársdag 1998.

25. desember
Samband náðist við leiðangursmenn á jólanótt í gegnum Patriot Hills.  Þeir áttu þá eftir 175 km að pólnum og gerðu ráð fyrir að ná því marki á gamlárskvöld.  Strákarnir eru mjög ánægðir með leiðangurinn og allir við góða heilsu.  Þeir báðu fyrir bestu jólakveðjur til allra heima á Íslandi.

23. desember
Eftirfarandi skilaboð bárust frá leiðangursmönnum í gegnum Patriot Hills:
Við erum núna (20. des) 297 km frá Suðurpólnum og í 2300 metra hæð.  Við erum núna að fara í gegnum erfitt rifskaflasvæði (sastrugi eða rifskaflar eru harðir, hvassbrýndir skaflar sem verða til vegna stöðugra vinda sem blása frá suðri).  Um jólin verðum við að mestu komnir í gegnum þetta svæði.  Á aðfangadag mun tjald okkar standa á Suðurskautsjöklinum og bestu nágrannar okkar verða ástralski leiðangurinn sem er 150 km í burtu.  Tjaldið verður heimili okkar og við munum kveikja á einu kerti, reisa jólatréð okkar (!) og skreyta með borðum.  Við munum syngja jólasöngva.  Jólin okkar verða einföld en ánægjuleg.  Við munum borða hamborgarhrygg og hugsa til fjölskyldna okkar og allra á Íslandi.  Bestu kveðjur til allra heima á Íslandi."

7. desember
Símasamband náðist við búðirnar í Patriot Hills aðfararnótt sunnudagsins 7. desember. Leiðangursmenn eru í talstöðvarsambandi þangað annan hvern dag. Þeir Ólafur, Haraldur og Ingþór eru við hestaheilsu og í góðu skapi. Ferðin gengur mjög vel og eru þeir á góðu skriði þessa dagana. Mánudaginn 8. desember er ferð þeirra að pólnum hálfnuð.

24. nóvember
Talsambandi var komið á við Suðurskautsfarana aðfararnótt sunnudags og töluðu þeir í talstöð í gegnum farsíma í Patriot Hills á Suðurskautslandinu.
Að sögn Haraldar Arnar Ólafssonar hefur ferðin gengið mjög vel hjá þremenningunum. Alls höfðu þeir lagt að baki 180 km á laugardagskvöldið og ganga nú um 20 km á dag. Göngutími þeirra á dag er um 7 klst. Allar aðstæður verið erfiðar og þeir hafa þurft að leggja hart að sér. Frostið er mikið, -20 til -25°C, og stöðugur mótvindur, allt að 8 vindstigum, og miklir skaflar. Þegar kaldast er geta þeir ekki tekið af sér vettlingana en góðir dagar koma inn á milli. Allt þetta er þó eins og við var að búast og ekkert hefur komið þeim á óvart. Heilsa þeirra og líðan er mjög góð og allur búnaður í lagi. Báðu þeir fyrir bestu kveðjur heim.

10. nóvember
Loks hægt að fljúga og kapparnir lentu á Suðurskautslandinu um kl. 18 (GMT)

8.-9. nóvember
Ekki flogið vegna veðurs. Þó voru leiðangursmenn kallaðir út á flugvöll tvisvar þann 9. en ekki gekk að fara í loftið.

4. nóvember
Pólfararnir eru komnir heilu og höldnu til Punta Arenas, Chile, eftir langt og erfitt flug.  Allur farangur hefur skilað sér og næstu daga munu þeir félagar nota tímann til að hvílast og yfirfara búnað sinn áður en lagt verður af stað.  Veður er ágætt en á þessum slóðum blæs oftast kaldur vindur af hafi.  Stefnt er að því að fljúga til Patriot Hills á Suðurskautslandinu laugardaginn 8. nóvember.

2. nóvember
Lagt af stað frá Íslandi með allan farangur, samtals um 400 kg.  Fyrsti áfangastaður er Orlando, Flórída.  Þeir Ólafur, Haraldur og Ingþór gista eina nótt í Flórída og fljúga svo áfram frá Miami til Santiago, Chile og loks til Punta Arenas, Chile.  Merkilega vel gengur að fást við bandaríska og chileanska tollverði þó beita þurfi nokkurri lagni í þeim samskiptum!

Umsjón: asdis@vortex.is

© 1997 - Öll réttindi áskilin