|
Ég
fékk köllun
- segir Svavar Sigurðsson sem berst við fíkniefnadjöfulinn
Svavar Sigurðsson ákvað það 58 ára gamall að fylgja eftir köllun Almættisins
og heyja baráttu gegn fíkniefnadjöflinum og leggja lögreglu og tollgæslu lið
hvað þetta varðar. Svavar fór nýverið á fund Karls Hermannssonar
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Keflavík til að kynna fyrir honum nýtt
tæki sem hann kallar “Þefarann.”
Gott samband við Guð
“Guð talaði við mig og sagði hvað ég ætti að gera
og við erum í góðu sambandi alla daga,” segir Svavar sem skildi við eiginkonu
sína og seldi eigur sínar fyrir 9 árum og hefur síðan ferðast um landið og
lagt lið í baráttunni við eiturlyf. “Ég er búinn að fara 7 hringi í kringum
landið og auðvitað tekið Vestfirði oft með, auk þess eru margar sérstakar
ferðir til Akureyrar,” segir hann. Nýja tækið er skynjari sem finnur eiturlyf
innanklæða, en hann segir að Karl Hermannsson hafi sýnt tækinu mikinn áhuga
og er Svavar að funda með þingmönnum til að reyna að koma því í gegn að tækið
verði keypt. Stuðningur Svavars felst í tæknilegri aðstoð sem og
fjárhagslegri.
Frjálst Ísland
Helsta baráttumál hans í þessu átaki sínu, er að frelsa Ísland undan
eiturlyfjamafíunni, sem hefur náð mikilli fótfestu hérlendis. “Áhrif
mafíunnar eru mikil og pólitísk og eiturlyf eru markaðssett með mútri. Ef
menn eru ekki sammála mér hvet ég þá til að lesa bókina “Falið vald
eiturlyfjakolkrabbans” eftir Jóhannes Björn. Svavar hefur gefið öllum
þingmönnum, lögreglustöðvum, Seðlabankanum, Samkeppnisstofun og Skattstofum
landsins eintak af bókinni og er sannfærður um að hún hafi verulega hjálpað.
En hann telur mikilvægt að vinna hörðum höndum gegn þessari þróun, því annars
getum við kvatt sjálfræðið.
Forsetaembættið tímaspursmál
Hugsjón og áræði Svavars fer víða, honum hefur borist bréf frá fíkniefnadeild
Hvíta hússins í Washington þar
sem deildin samþykkir hann til samstarfs. “Ég get þjónað öðrum löndum líka,
andinn minn er það sterkur,”
segir hann. Svavar hefur náð ágætum árangri á þessum 9 árum og þar má nefna
fíkniefnasamning Sameinuðu þjóðanna um þvætti, leit, hald, upptöku og
ávinning af afbrotum sem samþykktur var á Alþingi 19. febrúar
1997, en hann fékk þessa afgreiðslu í afmælisgjöf. Hann kom þessu áleiðis til
þingsins með aðstoð frá Svavari Gestsyni, Rannveigu Guðmundsdóttur og Ólafi
G. Einarssyni þáverandi forseta Alþingis. Í dag hefur hann mikil og góð
samskipti við embættis- og þingmenn sem og bæjarstjóra hringin í kringum
landið. “Ég hef mikil áhrif og allt að því meiri völd en ríkisstjórnin og það
er bara tímaspursmál hvenær ég verð forseti,” segir Svavar og hlær.
arni@snn.is
|