Hver vill láta eitra fyrir barninu sínu ?
Svavar Sigurðsson hefur fyrir hönd þjóðarinnar....
Keypt tövubúnað myndavél og scanner fyrir tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli.
Keypt farsíma fyrir tollgæsluna og fíkniefnalögregluna.
Fjármagnað útgáfu og dreifingu á bæklingnum "Fíkniefni, þú og barnið þitt", sem gefin var út í 95,000 eintökum.
Þrýst á Ríkisstjórn Íslands, Sveitastjórnir og aðra ráðamenn þjóðarinnar um að nauðsyn sé á aðgerðum vegna aukinnar fíkniefnaneyslu og ofbeldis í þjóðfélaginu.
Látið af hendi allar sínar eigur, til þess að standa straum af þeim kostnaði sem þessu hefur fylgt.
Sýnt ótrúlega fórnfýsi í þessari baráttu gegn einum mesta bölvaldi aldarinnar.
Í framhaldi af ótrúlegri fórnfýsi Svavars hefur nú verið stofnað líknarfélagið “Þjóðarátak gegn fíkniefnum” til að berjast gegn þessu þjóðarböli.
Markmið Okkar
Þjóðarátak í fíkniefnamálum er mikið þarfaþing, þar sem neysla fíkniefna hefur aukist meðal barna og ungmenna. Barátta okkar fellst m.a. í því að útbúa bæklinga sem aðstoða foreldra við að öðlast frekari skilning um forvarnir og baráttuna gegn eitrinu.
Framtíð þjóðarinnar er í mikilli hættu ef ekkert er að gert. Margir einstaklingar sem neyta fíkniefna, þroskast á ranghugmynum. Lifa jafnvel allt sitt líf í stanslausum misskilningi og eða verða geðsjúkir.
"Þjóðarátak gegn fíkniefnum" einbeitir sér að, .... og er að....
Auka fræðslu í skólum um skaðsemi eiturlyfja í samráði við viðkomandi skólayfirvöld, t.d. með fræðsluefni á bæklingum, myndbandsefni o.s.frv.
Beina unglingum inn á jákvæðar brautir, með ábendingum að nýjum áhugamálum, skemmtanahaldi ofl.
Aðstoða við að auka tækjakost tollgæslunnar og lögreglunnar í landinu með styrkjum til ýmissa sérverkefna, eða til kaupa á sérstökum tækjum sem tollgæsluna og fíkniefnalögregluna vantar nauðsynlega.
Það þarf að fjölga hundum til fíkniefnaleitar.
Halda áfram að beita þrýstingi á yfirvöld landsins, með áróðri, með viðtölum við æðstu menn þjóðarinnar og með bréfaskrifum til allra yfirvalda t.d. sveitastjórna, bæjar- og borgarstjóra, lögregluyfirvalda, o.s.frv.
"Þjóðarátak gegn fíkniefnum" gengur út frá eftirfarandi staðreyndum.
Í dag er talið að 3-5% af fíkniefnum sem smyglað er til landsins náist af yfirvöldum, en 95-97% af þessum efnum fari á markaðinn.
Aðal áhersluatriði okkar er að stöðva innflutning á fíkniefnum með öllum tiltækum ráðum.
Það verður aldrei metið til fjár, allt það andlega eða fjármagnslega tjón sem þjóðin verður fyrir af völdum fíkniefna.
Ekkert, hvorki sjúkdómar, slys eða önnur dauðsföll tekur jafn mörg mannslíf, eins og fíkniefni.
Ástandið í þjóðfélaginu fer dag versnandi, sem kemur m.a. fram í auknu ofbeldi og stórauknum afbrotum.
Með viðræðum við Elías Kristjánsson löggæslumann fíkniefnadeildarinnar er ljóst að fíkniefnadeildirnar skortir tilfinnanlega ýmis tæki til viðbótar eins og myndavélar, tölvubúnað og annað þess háttar.
Það vinnst sigur gegn fíkniefnum ef þjóðin stendur öll saman, og að því vinnum við
Hjálpaðu okkur í baráttunni
Eins og sést á þessarri upptalningu er í mikið ráðist og þurfum við allan þann stuðning sem hægt er að fá hjá einstaklingum og fyrirtækjum.
Nú höfðum við til þín til að geta haldið baráttuni áfram af fullum krafti. Styrki er hægt að leggja inn á reikninga okkar hjá Landsbankan Íslands.
Bankanúmer 0101
Reikningsnúmer - 180337
Kennitala: 520996-2579
|
Bankanúmer 0116
HB 05
Reikningsnúmer - 4510
Kennitala: 520996-2579
|
Þjóðarátak gegn fíkniefnum.
Sími: 568-0777
Heimilisfang: Bíldshöfða 12
Rafpóstur: sayno@vortex.is
Hringiðan ehf
Þjóðarátak Svavars Sigurðssonar