Þjóðarátak gegn fíkniefnum
   Átaksverkefni Hringiðunar ehf og Svavars Sigurðssonar

Síðdegisfréttir 27. júní 1997 á FM 95.7
Einar Gylfi Jónsson, deildarstjóri forvarnardeildar SÁÁ, segist fagna frumkvæði Ægis, íslensks fyrirtækis sem ætlar að vinna að stofnun alþjóðasamtaka gegn fíkniefnavandanum á heimsvísu í gegnum Internetið. Við greindum frá því í fréttum í gær að fyrirtækið hafi nú þegar hafið vinnu við að koma á samböndum á milli aðila víðsvegar um heiminn sem berjast gegn fíkniefnum. Að sögn Sigrúnar Ólafsdóttur hjá Ægis er markmiðið að koma öllum þessum aðilum saman undir einn hatt á netinu þannig að tengingar og samstarf þeirra á milli verði virkara og baráttan því öflugri. Einar Gylfi segir að ef fyrirtækið ætli sér að virka sem mótvægi við þann flaum af efni á netinu sem er til dýrða eiturefnunum þá sé það hið besta mál. Einar Gylfi segir að internetið sé mikið notað til þess að lofsyngja vímuefni og á mörgum síðum sé slegið fram staðhæfingum sem séu úr lausu loftni gripnar.

Hádegisfréttir 26.júní 1997 á FM 95.7
Íslenskt fyrirtæki er að vinna að stofnun alþjóðasamtaka sem eiga að vinna gegn fíkniefnavandanum á heimsvísu. Fyrirtækið heitir Ægis en það er tveggja mánaða gamalt og vinnur að internets- og margmiðlunarframleiðslu. Fyrirtækið hefur nú þegar hafið vinnu við að koma á samböndum á milli aðila víðsvegar um heiminn sem berjast gegn fíkniefnum.

Markmiðið er að koma öllum þessum aðilum saman undir einn hatt á netinu þannig að tengingar og samstarf þeirra á milli verði virkara og baráttan því öflugri. Allar upplýsingar frá þessum aðilum mun verða hægt að finna út frá einum stað og tilvísunarkerfi internetsins nýtt til hins ýtrasta. Allar upplýsingar sem berast um fíkniefnavandann verður þannig safnað saman á einn stað.

Einnig er fyrirhugað að koma af stað virkri umræðu á netinu innan fyrirhugaðra alþjóðasamtaka um það hvernig megi vinna bug á fíkniefnavandanum. Magnús Egilsson, framkvæmdastjóri Ægis, segir að ekki hafi áður verið ráðist út í að skipuleggja baráttu á heimsvísu gegn fíkniefnum á netinu áður - í mesta lagi hafi verið mynduð lausleg tengsl á milli nokkurra aðila.

Sigrún Ólafsdóttir er vefstjóri hjá Ægis og hún segir viðbrögðin vera góð við undirbúningi stofnunnar alþjóðasamtaka á internetinu sem eiga að berjast gegn fíkniefnum. Söfnun til handa aðilum sem berjast gegn fíkniefnum mun fara af stað á internetinu innan skamms. Hún verður þannig skipulögð að fyrirtæki verða fengin til að styrkja baráttuna með því að greiða vissa upphæð fyrir hvern tölvupóst sem kemur inn vegna söfnunarinnar. Við segjum nánar frá þessari söfnun þegar hún fer formlega af stað. Rætt var við Sigrúnu Ólafsdóttur í fréttatímanum.

Allur réttur áskilinn, © FM 95.7.

Hringiðan ehf
Þjóðarátak Svavars Sigurðssonar