|
Þennan leik
þekkja nú flestir en ég læt hann samt fljóta
með hér.
Til þess að leika hann þurfið þið fimm teninga
og yatsy-blokk eða þið getið prentið út blað
hér.
Hver keppandi
má kasta teningunum þrisvar, í hverri umferð og
skilja eins marga teninga eftir á borðinu og hann vill, eftir
hvert kast.
Til þess að fá verðlaun (35) fyrir 6 fyrstu reitina
þurfið þið að fá samtals 63 út úr
þeim (eða minnst 3 teninga með réttri tölu).
Teljið aðeins með teninga með réttri tölu.
Til að fá fullt hús þurfið þið
að fá sömu tölu á þrjá teninga
og einhverja aðra tölu á hina tvo (3+2). Fyrir það
fáið þið 25.
Stór röð er 1-2-3-4-5 eða 2-3-4-5-6 og fyrir
hana fáið þið 40.
Lítil röð er annað hvort 1-2-3-4, 2-3-4-5 eða
3-4-5-6. Fyrir hana fáið þið 30.
Til að fá yatsy þarf að fá sömu
tölu á alla teninga og þá er sama hvort það
er 1 eða 6, þú færð alltaf 50 fyrir yatsy.
Í öllum öðrum tilfellum leggið þið
saman punktana á öllum teningunum.
|