Þetta
er samtalsleikur fyrir tvær persónur sem við köllum
hér nr.1 og nr.2. Í upphafi leiks segja þær:
1) "Skip mitt er komið að landi"
2) "Hvað hefur það að færa"
1) "Þrjá unga sveina" (eða meyjar ef viðmælandi
er karlkyns)
2) "Hvernig voru þeir í hátt?"
1) "Sá fyrsti, þegar ég síðast sá
hann, var hár, ljóshærður, bláeygður,
í brúnum rifflaflauelsbuxum og í hvítum bol.
Sá annar þegar ég síðast sá hann
var"...........(og þannig heldur nr.1 áfram og lýsir
einhverjum þremur karlkyns-persónum sem viðmælandi
þekkir örugglega). Og svo endar hann á að segja:
"Hverjum viltu lifa og deyja með, hverjum viltu ganga með
og hverjum viltu kasta?" Þá verður nr. 2 að
gera upp hug sinn og svara spurningunni.