|
"Hver stal kökunni"
|
|
|
Þetta er samtalsleikur: Þátttakendur, sem eru númeraðir í byrjun, sitja í hring og klappa, ýmist á hné sér eða lófum saman (byrja á hné). Einn er fenginn til að byrja leikinn. Menn verða að halda taktinn allan tímann, ef þeir ruglast eru þeir úr. Hinir sem eftir eru verða líka að fylgjast með því hvaða númer detta út, því ef þeir nefna númer einhvers sem er úr, eru þeir sjálfir úr leik. Allir byrja: "Hver stal kökunni
úr krúsinni í gær?" Og þannig heldur leikurinn áfram. Þegar fáir eru eftir er hert á taktinum, og þarf þá sjaldan að bíða lengi eftir sigurvegaranum. Góða skemmtun!
|
|