|
Þetta er leikur
fyrir 2 til 3 þáttakendur.(Það geta verið fleiri
en þá verður leikurinn langdreginn). Þið þurfið
að hafa stein sem er sléttur á báðum hliðum,
t.d. góðan sjóbarinn stein. Hann þarf að vera
u.þ.b. 5 cm. í þvermál.
Sá sem byrjar stendur fyrir utan (langa svæðið neðst
á parísnum) og kastar steininum í fyrsta gatið.
Síðan á hann að hoppa inn í fyrsta gatið
og fara allan hringinn (frá 1-6) og síðan út
úr parísnum (fyrir neðan gat 6). En......hann á
að sparka steininum með sér allan tímann milli gata
og má bara vera á öðrum fæti í götum
nr. 2 og 5 (sjá mynd). Ef hann kemst allan hringinn kastar hann
næst í gat nr. 2 og síðan í 3 og þannig
verður leiðin smám saman styttri sem þarf að
sparka steininum með sér. Þegar einhver þátttakandi
er búin að fara þannig alla hringina 6 má hann
kjósa sér gat. Þá stendur hann á "útisvæðinu",
snýr baki í parísinn og kastar steininum yfir höfuðið
á sér og reynir að láta hann lenda í parísnum.
Ef steinninn lendir í einhverju gati merkir sá sem var að
kjósa sér gatið og hinir mega ekki stíga í
það og verða að sparka steininum yfir það.
Ef þið stígið á strik sparkið steininum
út úr gatinu eða gerið einhverja aðra vitleysu
á sá næsti að gera og þið byrjið
á því gati sem þið voruð í næst
þegar þið gerið.
|
|