|
Það
sem þarf til er ein tóm hálfslíters gosdrykkjaflaska.
Allir sitja í hring á gólfinu nema einn sem er inni
í hringnum. Hann snýr nú flöskunni og segir:
"Sá sem flöskustútur lendir á á
að syngja "Gamli Nói". Svo snýr hann flöskunni
og sá sem flöskustúturinn lendir á á
þá að syngja lagið. Þegar hann er búinn
að því fer hann inn í hringinn og endurtekur leikinn.
Auðvitað getur sá sem er inni í hringnum fundið
upp á hverju sem er til að láta
hinn gera. En þið verðið bara að muna að verður
að vera eitthvað sem allir geta gert.
|