| Tenglar:
|
Fátt veit ég
yndislegra en að ferðast um landið okkar. Þó
að ég sé komin á sjötugs aldur og sé
búin að vera á ferðinni frá því
að ég var lítil stelpa er ég alltaf að
sjá eitthvað nýtt á ferðum mínum
um landið. Öræfin hafa alltaf heillað mig og naut
ég þeirra í ríkum mæli þegar
við áttum jeppa. Eitt sinn hitti ég þýska
konu á Mývatni sem var jarðfræðingur. Við
röltum þar upp á hól, settumst niður og
spjölluðum. Hún sagðist ekki geta skilið hvers
vegna svo margir Íslendingar færu utan í fríinu
sínu, því náttúra landsins væri
svo einstök. Því til stuðnings sagði hún
mér að það væri til dæmis aðeins
einn staður í heiminum sem hægt væri að jafna
við Mývatn, ef gætt væri að fjölbreytileika
náttúrunnar. Þessi staður er einhvers staðar
á Grikklandi. Mér hefur oft dottið þetta í
hug síðan, þegar ég hef farið um landið
okkar og upplifað dásemdir þess.
|