Þessi
leikur hentar vel fyrir stóran hóp (minnst ca.10). Byrjið
á að útbúa miða með númerum sem
ná jafnhátt og þátttakendur eru margir. Séu
þeir t.d. 17 eru númerin frá einum og upp í
17. Brjótið miðana saman þannig að númerin
sjáist ekki og setjið þá í lítið
ílát. Stólum er raðað í hring, einum
færri en þátttakendur eru.
Allir setjast á stólana nema einn, en hann stendur inni
í miðjum hringnum. Sá sem er í miðjunni lætur
nú alla draga einn miða úr ílátinu og
sjálfur fær hann síðasta miðann. Passið
að aðrir sjái ekki númerin ykkar.
Nú á sá sem er inni í hringnum að nefna
tvö númer (athugið að allir viti hvaða númer
er hæst). Þá eiga þeir sem eiga þessi tvö
númer að skipta um sæti, en sá sem er í
miðjunni reynir að ná öðrum þeirra. Það
má ekki fara til baka í gamla sætið. Ef miðjumaðurinn
er orðinn þreyttur á að vera inn í getur hann
sagt; "Eldur og brennisteinn". Þá eiga allir að
skipta um sæti.
Önnur
útgáfa af þessum leik er "Blandaðir ávextir".
Þá eru valdar fjórar til sex ávaxtategundir
(eftir því hvað margir eru í leiknum) og nöfn
þeirra skrifuð á miðana í stað númeranna.
Þegar miðjumaðurinn segir t.d. "appelsínur"
þá eiga allar appelsínur að skipta um sæti
o.s.frv. Þegar allir eiga að skipta um sæti er sagt "Blandaðir
ávextir". Góða
skemmtun!