Í grænni lautu

 

 

Í grænni lautu þar geymi ég hringinn

sem mér var gefinn og hvar er hann nú,

sem mér var gefinn og hvar er hann nú?

 

Nemendur syngja lagið og ganga réttsælis í hring allir nema einn sem grúfir sig niður í miðjum hringnum. Áður en leikurinn hefst fær eitt barnið hring sem það geymir í lófa sínum. Um leið og lagið endar rétta allir fram hendur með kreppta hnefa, eins og þeir væru

með eitthvað í höndunum (Ef þáttakendur eru margir má láta þá rétta fram aðra höndina).  Nú fær miðjumaðurinn þrjár tilraunir til þess að finna hringinn, Það gerir hann með því að slá létt á hendur hinna, en munið bara þrjár hendur.  Ef hann finnur ekki hringinn grúfir hann aftur, en í næsta skipti eru hendurnar hafðar fyrir aftan bak sem slegið var á í fyrra skiptið.