Hann Frímann fór á engjar

 

 

Hann Frímann fór á engjar, einn fagran sumardag,

og var þar furðu lengi, húrra, húrra, húrra.

Hann tíndi líka rósir, hann tíndi líka ber

hann tíndi líka liljur í safnið handa þér.

Hann Frímann hann breiðir út armana sína

og biður að dansa við kærustu sína.

Hæ-falla, diddí-ralla, hæ-falla, diddí ralla.

Og sjáið hve fjörugt þau fara af stað,

og sjáið hve fjörugt þau fara af stað.

 

Börnin dansa réttsælis í hring, einn er inni í hringnum og leikur Frímann. Þegar kemur að 5. línu gengur Frímann að þeim sem

hann vil dansa við og breiðir út armana á móti honum. Börnin í hringnum stoppa, lyfta upp höndum en leiðast áfram og taka nú eitt skref til vinstri og annað til hægri, alltaf til skiptis. Eins geta þau bara staðið kyrr en vingsað höndunum í takt við lagið.

Og sjáið hve fjörgt: Frímann og frú dansa en krakkarnir ganga áfram í hring.