Bim bam bim bam
Hópurinn stendur upp við vegg allir nema einn sem snýr á
móti hinum og stendur í dálítilli fjarlægð
frá hópnum. Sá sem "er hann" (segjum að það
sé hann Þórir) byrjar og syngur;
Þórir:"Bim-bam-bim-bam, bimbi-rimbi-rim-bam". Um leið gengur hann fram í fyrri hluta vísunnar en bakkar til baka í þeim síðari.
Þá svarar hópurinn;(og gengur
fram og aftur eins og áður)"Hver er að berja, bimbi-rimbi-rim-bam".
Þórir: "Það er hann Þórir, bimbi-rimbi-rim-bam".
Hópur: "Hvern vill hann finna, bimbi-rimbi-rim-bam".
Þórir: "Elskulegu Stínu sína, bimbi-rimbi-rim-bam".
( og nú nefnir Þórir þann sem hann vill fá
til sín, ath. það getur verið hvort sem er strákur
eða stelpa.)
Hópur: "Hvað vill hann með hana, bimbi-rimbi-rim-bam".
Þórir: "Láta hana vaska upp, bimbi-rimbi-rim-bam".
(auðvitað ákveðið þið sjálf hvað
viðkomandi á að gera)
Hópur: "Hvað fær hún að launum, bimbi-rimbi-rim-bam".
Þórir: "Tíu börn í bala og átján
rottuhala" (muna, vera sniðugur í svari en ekki leiðinlegur)
Hópur: "Fari hún þá með gleði, bimbi-rimbi-rim-bam".
(eða skít og skömm, eftir því hvað við
á)
Og nú fer Stína yfir til Þóris og þau koma
sér saman um hvern á að biðja um næst. o.s.frv.
Afbrigði af þessum leik er "Hæsingja-læsingja-lon-don-don".
Þá byrjar sá sem er hann á að syngja:
"Mætti´ég biðja' um Stínu,Hæsingja-læsingja-lon-don-don".
Hópurinn svarar:"Hvað vilt þú
með Stínu, Hæsingja-læsingja-lon-don-don".
Og síðan er restin af leiknum eins og "Bim-bam bim-bam",
nema að þið segið alltaf; "Hæsingja-læsingja-lon-don-don",
í restina á hverri setningu. Lagið er alveg eins.