Jóhanna lærði söng í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í Reykjavík, við Royal Northern College of Music í Manchester, í Vín og Fiorensuola. Jóhanna hefur sungið í kórum frá 16 ára aldri. Hún hefur verið einsöngvari með kórum, í óperum, leikhúsi og með hljómsveitum, þ. á m. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Jóhanna gaf út sóló geisladisk fyrir jólin 1997. Auðvitað hefur Jóhanna alltaf sungið einsöng á tónleikum Léttsveitarinnar. Auk þess sem hún er nú í hljómsveit sem heitir Six Pack Latino, sem gaf út geisladisk fyrir jólin 1999 með skemmtilegri mambó og salsa tónlist. Hún er einnig í 4KLASSÍSKUM, ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur, Björk Jónsdóttur og Signýju Sæmundsdóttur. Hún stjórnar einnig barnakór Bústaðakirkju og Bjöllukór Bústaðakirkju.