Lágnætti er heiti í nýjum hljómdiski sem kom út fyrsta vetrardag. Það er söngkonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir sem syngur 15 lög á hlýjum og djúpum nótum sem ylja okkur í kulda og myrkri veturs. “Hver þekkir ekki ævintýralega birtuna um lágnættið á norðurslóðum þegar ástin blossar upp og hvíslar blíðum orðum í eyru elskenda? Eftir nokkrar salsaferðir suður á bóginn er söngkonan flogin heim til ísalands. Röddin finnur sér farvegi í ljúfsárum lögum sem hitta okkur beint í hjartastað. Heillandi ljóðin leiða okkur um kynngimagnaða veröld lágnættisins þar sem þráin eftir síendurteknu lífsævintýri er aldrei langt undan” segir Hlín Agnarsdóttir á bakhlið disksins.
Með Jóhönnu leika píanóleikarinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir, bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og trommuleikarinn Erik Qvick. Hildigunnur Einarsdóttir syngur bakraddir. Á diskinum má heyra lög eftir íslenska og erlenda höfunda alla með íslenskum textum. Mörg laganna hafa ekki verið gefin út áður t.d. Íslenskt vöggulag eftir Hallbjörgu Bjarnadóttur og Dómar heimsins dóttir góð eftir Valgeir Guðjónsson í nýrri útsetningu Aðalheiðar Þorsteinsdóttur, lög eftir Hróðmar Sigurbjörnsson, Pál Torfa Önundarson við ljóð Jónasar Hallgrímsson og Tómas R. Einarsson við ljóð Ingibjargar Haralds. Einnig má finna lög eftir Niels-Henning Órsted Petersen með texta eftir Margréti Þorvaldsdóttur og Matta Borg með nýjum texta eftir Eygló Eyjólfsdóttur, lög eftir Nino Rota, Atla Heimi Sveinsson, Karl Ó. Runólfsson, Eyþór Stefánsson, Árna Björnsson og Matamoras.
Það er Valgardi sem gefur diskinn út. Myndskeytingu á albúmi gerði Hafsteinn Michael og Sigurlaug Helga Emilsdóttir gerði albúmið tilbúið til prentunar. Geisladiskurinn var tekinn upp “live” í Fóstbræðraheimilinu þrjá daga í ágústmánuði á þessu ári. Upptökumaður var Jón Skuggi en Hjóðvinnslan sá um fjölföldun og Guðjón Ó um prentun á umslagi.
