FRÉTTABRÉF LHM 
4.árg.2tbl. maí 2000
OPIÐ HÚS :
Nú hvet ég alla félagsmenn til þess að mæta á Lindargötuna á rabbfund
sem haldinn verður 29.maí næstkomandi húsið opnar kl.20.
-------------------------
Iðntæknistofnun hefur svarað fyrirspurn LHM og vilja bjóða félagsmönnum
15% afslátt af námskeiðum sem hún heldur. Fólk er hvatt til þess
að notfæra sér þetta tilboð og geta fengið vottun hjá formanni um aðild
að félaginu.
Síðastliðið vor fór formaður LHM fram á samstarf við forsvarsmenn Nýsköpunarkeppni
grunnskólanna. Margar hugmyndir barna og ungmenna eru það góðar að vinna
verður að því að koma þeim á framfæri, ef ekki hérlendis, þá erlendis.
LHM hefur átt gott samstarf við sænska hugvitsfélagið og eru þeir tilbúnir
að miðla okkur af 113 ára reynslu sinni.
Í ár bárust um 2000 hugmyndir frá rúmlega 50 skólum í keppnina. Í fyrra
bárust rúmlega 700 hugmyndir ! Aukningin er næstum þreföld. Börnin gátu
í fyrsta sinn skráð sig í keppnina í gegnum netið og voru um 40 sem
notfærðu sér þennan möguleika. OZ tók að sér að hanna veflæga umsóknar
formið. Búast má við að fleiri börn notfæri sér þennan nýja möguleika
næsta ár.
Nú á að stefna að því að mynda þjónustumiðstöð sem hefur m.a. það hlutverk
að koma hugmyndum barna og ungmenna á framfæri. Þetta verður samstarfsverkefni
fjárfesta, fyrirtækja, skóla, LHM og jafnvel fleiri aðila. Með þessu
verður unnt að vinna markvissara að því að góðar hugmyndir verði að
veruleika.
LHM tók að sér að verðlauna þriðja sæti í uppfinningahugmynd. Verðlaunin
skiptust milli tveggja hugmynda, annars vegar “vinstrihandarhjálp”
og hins vegar “kartöfluholara”, samtals tuttugu þúsund krónur.
Ég hvet alla til þess að sjá sýningu á hugmyndum barnanna sem er
núna í Gerðubergi í Breiðholti. Það er opið alla daga nema sunnudaga
milli kl. 9-19.
--------------------------
QUIN eru samtök hugvitskvenna á Norðurlöndum sem stofnuð voru 1992,
en starfsemin hefur legið niðri síðan 1995. Síðastliðið haust var
haft samband við formann LHM og óskað eftir því að hefja samvinnu
í því að gera konur sýnilegri sem hugmyndasmiði eða frumkvöðla. Markmiðið
er að taka Balkanlöndin inn í samvinnuna og hittust fulltrúar frá
öllum Norðurlöndunum og Litháen í Kaupmannahöfn í lok nóvember 1999.
Íslensku konurnar sjá um að gera heimasíðu fyrir samtökin og er hún
í smíðum og mun vera undir QUIN.is. Á næsta ári munum við hittast
hér á Íslandi og halda sýningu og ráðstefnu til kynningar á því að
konur eru ekki síðri sem nýskapendur.
“Samvinnu má líkja við geisla sólarinnar, þeir lýsa án þess að
rekast á en saman taka þeir þátt í því að þróa og framkalla nýtt líf.”
---------------------
Eins og félagsmenn vita var aðalfundur félagsins haldinn 25.mars
2000 og mættu samtals 12 félagar. Engin tillaga barst að stjórnarbreytingu
og var stjórnin því sjálfkjörin að mestu leyti. Sú breyting varð þó
á skipan stjórnar að Paul Jóhannson var kosinn ritari í stað Bjarna
Th. Rögnvaldssonar og Gestur Gunnarsson óskaði eftir því að gerast
varamaður. Katrín Halldórsdóttir var jafnframt kosin sem varamaður
í stjórn. Við bjóðum nýja stjórnarmeðlimi velkomna til starfa.
Fundargerð aðalfundar fylgir með fréttabréfinu, einnig skýrsla stjórnarinnar
sem lögð var fram á fundinum.
----------------------
Fyrirhugað er að halda málþing í byrjun september á þessu ári. Þá
kemur til landsins samnorræn sýning á hugmyndum barna, kölluð Fantasi
Design. Formenn norrænu hugvitsfélaganna hafa lýst áhuga á því að
koma hingað og ræða málin. Ég mun senda út tilkynningu síðar þegar
dagskráin er tilbúin. Frú Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
hefur lýst áhuga á því að verða viðstödd.
Að lokum hvet ég ykkur að mæta á Lindargötuna 29.maí og ræða um framtíðarstarfsemi
hugvitsfélagsins. Allir geta komið með tillögur og ráð og óskir.
SJÁUMST HRESS OG KÁT.
Kveðjur
Elinóra Inga Sigurðardóttir