18.09.2000
Síðakjólaball
Flugmálafélags Íslands 2000 - Lok sumarvertíðar
Ballið verður haldið í Sunnusal Hótel Sögu 22.september.
Húsið opnar kl 19:00.
Fordrykkur
Hátíðarkvöldverður
Strengjakvartettinn Sardas leikur létta tónlist.
Dagskrá: Verðlaunaafhending sumarsins.
Fram koma m.a.: Þorsteinn E. Jónsson, flugstjóri,
Ómar Ragnarsson, fréttamaður, Arngrímur B. Jóhannsson,flugstjóri,
Brendan O´Brian, kynnir Flightline á Discovery.
Veislustjóri: Davíð Jóhannsson
Hljómsveitin Leyniþjónustan leikur fyrir dansi.
Verð 4.900 - matur, dansleikur og fordrykkur innifalinn.
Athugið að það er takmarkaður fjöldi sem
kemst að svo það er um að gera að drífa sig og
kaupa miða. Miðasala. í síma 896-0003(Hjalti) og 897-5252
(Tyrfingur) 13.06.2000
Dagatal
2000
Út er komið flugdagatal sem hefur að geyma, fyrir utan
hefðbundnar upplýsingar, yfirlit yfir helstu viðburði
ársins á sviði flugmála. Davíð Jóhannesson stendur
fyrir útgáfunni og kostar það 500 kr. Hægt er nálgast
dagatalið á flestum þeim stöðum þar sem flugáhugamenn
hittast m.a. í FÍE félagsheimilinu.
02.06.2000
Flugrallý
Þann 29.maí var haldið námskeið vegna fyrirhugaðs
flugrallýs þann 15.júlí á Selfossi. Matthías Arngrímsson sótti námskeiðið og setti
saman smá pistil um það sem fór fram á því fyrir
þá sem mættu ekki. <MEIRA>
18.05.2000
Sumardagskrá
2000
Sett hefur verið saman dagskrá FÍE fyrir sumarið. Það
er von FÍE að sem flestir sjái sér fært að mæta á
þessa viðburði og að við náum að blása
almennilegu lífi í félagsskapinn. Nánari upplýsingar
munu birtast um hvern viðburð eftir því sem nær
dregur. <MEIRA>
18.05.2000
Þrjú
H
Nú þegar sumar er gengið í garð kemur sá tíma
að við flugmenn förum að fljúga til allra óstjórnuðu
flugvallana sem eru úti um allt í okkar fallega landi.
Nú er einmitt rétti tíminn til að rifja upp þær
reglur sem gilda um flug í nágrenni óstjórnaðra
flugvalla á Íslandi. <MEIRA>
18.05.2000
"Pinch
Hitters" - Kynning á flugi ætluð mökum flugmanna
Komið hefur til tals að FÍE haldi kynningu fyrir maka
flugmanna, svokallað "Pinch Hitters" námskeið,
þar sem farið er yfir undirstöðuatriði flugs, og
flogið eru nokkrir flugtímar með kennara. <MEIRA>
18.05.2000
Breytingar
í AIP
Í næstu breytingum sem koma fyrir í AIP mun
umferðahringjum fyrir Selfoss og Vestmannaeyjar verða
breytt. Fljótlega mun verða tekin ný tíðni í notkun
fyrir spjallrás á flugi. Í stað 123.45 Mhz, sem nú
er notuð, mun tíðnin 133.50 Mhz verða tekin í notkun.
Tíðnin 123.45 mun verða notuð í öðrum tilgangi. <MEIRA>
18.05.2000
Flugrallý
FÍE og FMÍ
Stefnt er að því að halda flugrallý þann
15. júlí n.k. Mun það verða gert frá Selfossi. Búið
er að hengja upp skráningarlista hér og þar og eru
menn hvattir til að skrá sig. <MEIRA>
18.05.2000
Ný aðstaða
fyrir gerð flugáætlana
Búið er að setja upp borð í félagsheimilinu
og eru þar eyðublöð fyrir flugáætlanir. <MEIRA>
02.05.2000
Brenglun Bandaríska hersins á GPS hefur verið hætt
Á miðnætti þann 2. maí 2000 var brenglun á
merkjasendingum gervihnatta í GPS kerfinu hætt. Þessari
ákvörðun er fagnað af stjórn FÍE þar sem hún
telur hana bæta flugöryggi. Þetta gerir það að
verkum að nákvæmni í staðsetningu eykst til muna en
breytir því ekki að vandamál er varða heilleika
merkja eru enn til staðar. <MEIRA>
24.05.2000
Ný stjórn var kosin 24. febrúar síðastliðinn
Stjórnina skipa; Hjalti Geir Guðmundsson, formaður.
Ilias Karl Moustacas, varaformaður. Hörður Sverrisson,
ritari. Helgi Kristjánsson, gjaldkeri. Sigurður M. Jónsson,
meðstjórnandi, Matthías Sveinbjörnsson, varamaður.
Þórarinn Hjaltason, varamaður. Ottó Tynes flugstjóri,
varamaður. <MEIRA>
|