Félagið

Rampurinn

Á döfinni  
  Fundir
Flugkomur
Flugrallý
Lendinga-
keppnir

Linkar

Vetrardagskrá 2003-4
Sett hefur verið saman dagskrá FÍE fyrir veturinn. Það er von FÍE að sem flestir sjái sér fært að mæta á þessa viðburði og að við náum að blása almennilegu lífi í félagsskapinn. Nánari upplýsingar munu birtast um hvern viðburð eftir því sem nær dregur. Hér fyrir neðan eru þeir flokkaðir eftir tegund.

Fundir og viðburðir

12. desember, 2003. Jólaglögg. Hin árlega jólaglögg FÍE. Mæting FÍE 20:00

7. febrúar, 2004.. Flug yfir hafið. Flugöryggisfundur Ottó Tynes og fyrirlestur haldinn af Helga Kristjánssyni og Sigurði gæsluflugmanni Mæting FÍE 13:00. Fundurinn endar með sýningu á myndbandi Helga og Sigurðar af ferð þeirra með TF-FAA frá Danmörku til Íslands. Að lokum verður sýnt myndband tveggja bandaríkjamanna frá Bandaríkjunum til Noregs með viðkomu á Grænlandi og Íslandi.

27. febrúar 2004. Bjór og Myndakvöld. Myndir frá Grænlandsför TF-ELX (Haflið og Steingrímur) og TF-VHH (Guðmundur Hjaltason og Kiddi). Mæting FÍE kl. 20:00

27. mars 2004. Fyrirlestur - Flugveður og flugöryggi. Fyrirlesari Ottó Tynes flugstjóri. Mæting FÍE kl. 13:00

22. apríl 2004. Aðalfundur
Mæting FÍE kl. 20:00