Vefpóstur            
Þú ert hér: Forsíða > Hringiðan > Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar

Hringiðan byggir mikið á samstarfi við leiðandi aðila, hér að neðan getur þú séð lista yfir þá sem við vinnum með.

 

Orkuveita Reykjavíkur
Hringiðan er fyrsta Internetþjónustan sem hefur hafið að bjóða Internetþjónustu yfir ljósleiðaranet Orkuveitunnar. Hringiðan hefur gert samning við OR um að veita Internetþjónustu yfir ljósleiðaranet OR sem verðu lagt í öll hús á Akranesi, Setljarnarnesi og í Reykjavík fyrir árið 2011.
http://www.or.net/

 

Microsoft á Íslandi
Hringiðan er viðurkenndur samstarfsaðili Microsoft á Íslandi. Við seljum og notum Microsoft vörur og notum okkur alltaf það nýjasta sem er í boði frá þeim.

http://www.microsoft.is/

ISNIC
Internet á Íslandi hf., ISNIC, sér um skráningu og úthlutun léna undir þjóðarléninu .is, en öll lönd eiga sitt þjóðarlén sem endar á tveggja stafa auðkenni samkvæmt alþjóðlegum staðli. Auðkennið fyrir Ísland er "IS". Allar umsóknir um lén undir .is berast til ISNIC þó sótt sé um lénið hjá okkur.
http://www.isnic.is

 

Síminn
Hringiðan á í víðtæku samstarfi við Símann sem einnig er einn helsti keppinautur fyrirtækisins. Hringiðan bíður í samstarfi við Símann ADSL og IP þjónustu ásamt fjölda annarra samninga sem veita Hringiðunni aðgang að grunnnetum Símans og heimtaugum til viðskiptavina fyrirtækjanna. Einnig hefur Hringiðan ehf tryggt með samningum aðstöðu fyrir búnað sinn í símstöðvum Símans.
http://www.siminn.is/

 

Vodafone
Hringiðan ehf á einnig í víðtæku samstarfi við Vodafone sem jafnframt er samkeppnisaðili Hringiðunnar ehf.
Hringiðan hefur gert samninga við Vodafone um aðgang að ADSL kerfi þess. Einnig er ein af 3 Internetgáttum Hringiðunnar tengd Vodafone.
http://www.ogvodafone.is

Núlleinn á Íslandi
Hringiðan hefur hafið samstarf með Núlleinum á Íslandi sem sérhæfir sig í þróun á vefumsýslukerfinu Dísil. Kerfið er allt skrifað í .NET umhverfinu og er eitt það framsæknasta í dag.
http://www.disill.is

 

Billion
Frá árinu 2000 hefur Hringiðan notað Billion ADSL búnað sem hefur reynst mjög vel. Billion eru með mikið úrval af netbúnaði og því hefur Hringiðan gott val á því hvernig búnað Hringiðan notar fyrir Internettengingar hjá viðskiptavinum.
http://www.billion.com

Firstmile á Íslandi ehf
Áður en Firstmile var breytt í IP Fjarstkipti ehf átti Hringiðan í miklu samstarfi það fyrirtæki. Firstmile var leiðandi í ADSL háhraðatengingum á Íslandi.  Firstmile voru fyrstir til að koma með ADSL2+ á markað hérna heima.
http://www.firstmile.is




 
Rounded Rectangle:    

Leit